Hraðakstur á Vesturlandsvegi í Reykjavík
Brot 110 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í norðurátt, á móts við Vínlandsleið. …
Brot 110 ökumanna voru mynduð á Vesturlandsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vesturlandsveg í norðurátt, á móts við Vínlandsleið. …
Karlmaður um fertugt var í gær í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaður í gæsluvarðhald til 7. maí að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn var handtekinn í fyrradag í …
Útivistartími barna og unglinga tekur breytingum 1. maí. Frá þeim tíma mega 12 ára börn og yngri vera úti til klukkan 22.00. 13 til 16 …
Karlmaður um fertugt var í gær í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaður í gæsluvarðhald til 7. maí að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn var handtekinn í fyrradag í þágu rannsóknar lögreglu á innbroti og þjófnaði á fjármunum úr verðmætaflutningabifreið í Hamraborg í Kópavogi fyrir rúmum fimm vikum. ... Sjá meiraSjá minna
0 CommentsComment on Facebook
Útivistartími barna og unglinga tekur breytingum 1. maí. Frá þeim tíma mega 12 ára börn og yngri vera úti til klukkan 22.00. 13 til 16 ára unglingar mega vera úti til klukkan 24.00. Börn mega ekki vera á almannafæri utan fyrrgreinds tíma nema í fylgd með fullorðnum. Bregða má út af reglunum fyrir síðartalda hópinn þegar unglingar eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Aldur miðast við fæðingarár.
FORELDRUM/FORRÁÐAMÖNNUM ER AÐ SJÁLFSÖGÐU HEIMILT AÐ STYTTA ÞENNAN TÍMA OG SETJA BÖRNUM SÍNUM REGLUR UM STYTTRI ÚTIVISTARTÍMA.
Útivistarreglurnar eru samkvæmt barnaverndarlögum. Þeim er m.a. ætlað að tryggja nægan svefn en hann er börnum og unglingum nauðsynlegur. Svefnþörfin er einstaklingsbundin en þó má ætla að börn og unglingar á grunnskólaaldri þurfi 10 tíma svefn á nóttu. Mikilvægt er að fylgja því eftir að börn og unglingar fái nægan svefn. Í því felst m.a. að ganga úr skugga um að þau séu ekki í símanum eða tölvunni þegar þau eiga að vera komin í rúmið.
... Sjá meiraSjá minna
0 CommentsComment on Facebook
UPPFÆRT:
Hópakstur Sniglanna hefur nú farið um gatnamót Hringbrautar og Vatnsmýrarvegar og því er umferðin þar aftur með eðlilegum hætti.
Lögreglan þakkar ökumönnum fyrir tillitssemi vegna þessa.
-------------------------------------------------------------------------
Viðburðir dagsins munu hafa töluverð áhrif á vegfarendur á miðborgarsvæðinu og í vesturbænum, en upplýsingar um þá er að finna á síðum Reykjavíkurborgar. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu nefnir sérstaklega hópakstur Sniglanna, sem fer frá Grandagarði kl. 12. Þaðan liggur leiðin um Mýrargötu, Geirsgötu, Lækjargötu, Fríkirkjuveg, Sóleyjargötu, Gömlu Hringbraut, Vatnsmýrarveg, Hlíðarfót og Nauthólsveg, en aksturinn endar við Háskólann í Reykjavík. Vegna þessa verða tafir fyrir aðra vegfarendur á umræddri leið, en sérstök athygli er vakin á töfum sem verða á gatnamótum Hringbrautar við Vatnsmýrarveg og Hlíðarfót núna í hádeginu á meðan hópaksturinn fer yfir gatnamótin. Þar má búast við talsverðum töfum og kannski betra fyrir aðra þá sem málið varðar að flýta/seinka för eða velja sér mögulega aðra leið að þessu sinni. Gera má ráð fyrir að umrædd hópkeyrsla standi yfir í allt að klukkustund, þ.e. frá Grandagarði að Háskólanum í Reykjavík.
... Sjá meiraSjá minna
4 CommentsComment on Facebook
Hvað er að frétta? Er 1.maí ekki fánadagur hjá Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ?